Húsarannsóknir
Helstu verkefni
Rannsóknarverkefni húsasafns beinast einkum að einstökum húsum safnsins, sérstaklega í tengslum við veigamiklar viðgerðir á þeim. Rafrænt fagorðasafn er í þróun en viðgerðir á húsunum vekja iðulega upp áleitnar spurningar um einstaka húshluta.
Allmörg hús hafa hlotið umfangsmikla viðgerð á síðastliðnum árum en viðhaldsþörf húsanna er gríðarlega mikil og framkvæmdir fjárfrekar. Á þetta sérstaklega við um torfhúsin. Fyrirhugað er að út komi rannsóknarskýrslur í lok mikilla viðgerða einstakra húsa. Um árabil hafa verið unnar greinargerðir um árlegar framkvæmdir í húsasafninu og kom sú síðasta út í ritröðinni Rannsóknarskýrslur Þjóðminjasafns.
Samstarfsverkefni
Þjóðminjasafnið stendur að ritröðinni Kirkjur Íslands í samvinnu við Húsafriðunarnefnd ríkisins, Biskupsstofu og Fornleifavernd ríkisins. Starfsmenn safnsins skrifa um þær kirkjur sem eru í húsasafninu en einnig um kirkjugripi í mörgum friðuðum kirkjum á landinu. Starfsmaður húsasafns hefur einnig komið að Reykholtsrannsókn og gert grein fyrir horfnum kirkjum í Reykholti eins og þær birtast í ritheimildum.
Skýrslur/sýningarskrár/rannsóknir
2009 Guðrún Harðardóttir: „Reykholtskirkja. Horfnar kirkjur sautjándu til nítjándu aldar, Byggingarsaga kirkjunnar, Lýsing kirkjunnar, Byggingarlist kirkjunnar, Kirkjugarður.“ Kirkjur Íslands 13. Reykjavík 2009, 292-307, 317.
2007 Guðrún Harðardóttir:„Umgjörð dómsdagsmyndar.“ Á efsta degi. Býsönsk dómsdagsmynd frá Hólum. Reykjavík 2007, 33-39.
2007 Guðrún Harðardóttir: „Möðruvallakirkja. Klukknaport.“ Kirkjur Íslands 10. Reykjavík 2007.
2007 Guðrún Harðardóttir: „Saurbæjarkirkja. Kirkjustaður, Byggingarsaga kirkjunnar, Lýsing kirkjunnar, Byggingarsögulegt samhengi, Gripir og áhöld, Kirkjugarður.“ Kirkjur Íslands 10. Reykjavík 2007.
2007 Anna Lísa Rúnarsdóttir: Á tímum torfbæja : Híbýlahættir og efnismenning í íslenska torfbænum frá 1850. (Skýrslur Þjóðminjasafns Íslands)
2006 Guðrún Harðardóttir: Laufás í Eyjafirði. Viðgerðir 1997-2002. Stofa, brúðarhús, búr og dúnhús. Reykjavík 2006. (Skýrslur Þjóðminjasafns Íslands).
2006 Guðrún Harðardóttir: „Um Nesstofu og heimildabakgrunn hússins.“ Valhúsið. Blað Rótarýklúbbs Seltjarnarness. Maí 2006, 26-27.
2006 Guðrún Harðardóttir: „The physical setting of Reykholt according to Sturlunga saga.“ Reykholt som makt- og lærdomssenter i den islandske og nordiske kontekst. Ritstj. Else Mundal. Reykholt 2006.
2005 Guðrún Harðardóttir: „Grafarkirkja“. Kirkjur Íslands 6. Reykjavík 2005, 63-86.
2005 Guðrún Harðardóttir: „Víðimýrarkirkja: Kirkjustaður, Horfnar kirkjur ásamt Herði Ágústssyni, Lýsing kirkjunnar, Kirkjubúnaður og messuföng“. Kirkjur Íslands 5. Reykjavík 2005.
2004 Guðrún Harðardóttir: „Brúðarhús í Laufási". Í eina sæng. Íslenskir brúðkaupssiðir. Ritstj. Hallgerður Gísladóttir. Reykjavík 2004, s. 59-64.
2004 Guðrún Harðardóttir: „Húsakostur og búseta". Þjóð verður til. Menning og samfélag í 1200 ár. Leiðarvísir um grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands. Ritstj. Hrefna Róbertsdóttir. Reykjavík 2004, s. 36-39.
2004 Guðrún Harðardóttir: „Í herrans helgidómi. Kirkjubyggingar frá öndverðu til tuttugustu aldar". Hlutavelta tímans. Ritstj. Árni Björnsson og Hrefna Róbertsdóttir. Reykjavík 2004, s. 150-161.
2004 Haraldur Helgason: „Bæjarhús á síðari öldum. Byggingararfur í húsasafni Þjóðminjasafnsins“. Hlutavelta tímans. Ritstj. Árni Björnsson og Hrefna Róbertsdóttir. Reykjavík 2004, s. 140-149.
2003 Guðrún Harðardóttir: „Gerðir horfinna Reykholtskirkna". Reykholtskirkja. Fornleifarannsókn 2002. Reykjavík 2003, s. 17-23. (Skýrslur Þjóðminjasafns 2003:4).
2002 Haraldur Helgason: Greinargerð um stöðu og verkefni húsverndardeildar Þjóðminjasafns Íslands árið 2002 (Rannsóknarskýrslur Þjóðminjasafns 2002:3)
2001 Guðrún Harðardóttir: „Tungufellskirkja. Kirkjustaður. Byggingasaga kirkjunnar. Lýsing kirkjunnar. Byggingarsögulegt samhengi“. Friðaðar kirkjur í Árnesprófastsdæmi. Hrepphólakirkja, Hrunakirkja, Tungufellskirkja. Reykjavík 2001.
2000 Þór Hjaltalín: „Jarðgöng á Keldum. Fundur Ganganna árið 1932." Goðasteinn (Héraðsrit Rangæinga) 2000, 218-237.
1999 Þór Hjaltalín: Keldur á Rangárvöllum. Framkvæmdir á Keldum 1997-1998 og stefnumótun um viðgerð bæjarins (Rannsóknarskýrslur Þjóðminjasafns 1999:1)
1999 Þór Hjaltalín: Viðgerðir á Keldum sumarið 1997. Vesturtraðir, smiðja, hjallur og Nýjahús (Rannsóknarskýrslur Þjóðminjasafns 1999:2)

