Sýningar
SKE-18

Óþekkt augnablik

Bogasalur 12. september 2009 - 10. janúar 2010

Greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu 1920-1960 úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Leitað er aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis. Smellið hér til að skoða myndirnar.

Óþekkt augnablik er greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu um 1900-1960. Á sýningunni er brugðið upp myndum úr sex filmusöfnum úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Þær sýna þverskurð af viðfangsefnum ljósmyndaranna og þróun íslensks samfélags á þeirri rúmu hálfu öld sem þær spanna. Jafnframt eru þær gestaþraut þar sem leitað er í smiðju safngesta um þekkingu á því sem myndirnar sýna. Hvar eru myndirnar teknar? Hvaða fólk er á þeim?

Hér á síðunni er hægt að skoða myndirnar og geta gestir skráð athugasemdir við þær ef þeir þekkja til fólks eða staða á myndunum, upplýsingarnar eru yfirfarnar og skráðar í gagnagrunn safnsins. Upplýsingar sem safnast með þessum hætti eru safninu einkar mikilvægar því þær setja nafnlausar myndir í nýtt samhengi og segja sögur sem annars hefðu fallið í gleymskunnar dá.


Sýningarhöfundur er Inga Lára Baldvinsdóttir.

Myndirnar eru flokkaðar eftir ljósmyndurum. Smellið á nafn ljósmyndara og síðan á mynd til að stækka hana og senda safninu upplýsingar um hana.:

Friðrik H. Ludvigsson og Ludvig Arne Hafliðason

Sigurður K. Eyvindsson

Enskur ljósmyndari skemmtiferðaskips

Sigurður Tómasson

Guðni Þórðarson

Runólfur Jónsson


Boðið er upp á sérstaka fræðslu fyrir 4. - 6. bekk í tengslum við sýninguna þar sem unnið er út frá þjóðháttum fyrri tíma á Íslandi.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica