Beint í leiðarkerfi vefsins.
Síðan um 1960 hefur Þjóðminjasafn Íslands safnað skipulega heimildum um lífshætti í eldri tíð með því að semja spurningaskrár og senda út til fólks. Á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins 1963 færði svo menntamálaráðherra safninu sérstaka þjóðháttadeild í afmælisgjöf til að sinna þjóðháttasöfnun.
Lesa meira
Hallgerður hóf fyrst störf fyrir Þjóðminjasafnið sumarið 1976 þegar hún ásamt fleiri stúdentum tók þátt í söfnunarátaki þjóðfræða um allt land sem unnið var í samvinnu við Þjóðminjasafnið. Aðalviðfangsefnin voru fráfærur, selfarir, vatns- og vindmyllur þótt fleira flyti með.
Næstu ár fékkst Hallgerður í hlutastarfi við úrvinnslu og skrásetningu þess mikla afraksturs sem varð af söfnuninni. Einnig vann hún við að skrásetja þjóðfræðileg minnisblöð danska fræðimannsins Holger Kjær sem ferðaðist um Ísland árið 1929.
Lesa meira