Kreppan, hrunið og búsáhaldabyltingin
Safnið hefur áhuga á að ná til fólks sem býr yfir upplýsingum um framangreint efni en unnt er að sækja spurningaskrána hér og senda svör í tölvupósti á netfangið agust@thjodminjasafn.is.
Nauðsynlegt er að vista skrána áður en henni verður svarað. Leiðbeiningar og nánari upplýsingar eru í spurningaskránni. Öll svör verða varðveitt nafnlaus og því ópersónugreinanleg. Með spurningaskránni er leitast við að ná til sem breiðasts hóps í öllum landshlutum, jafnt karla sem kvenna.
Þeir sem fremur kjósa að svara ekki stafrænt geta fengið umslög sem setja má ófrímerkt í póst og pappír til að svara á með því að hafa samband við Þjóðminjasafnið í síma 530 2200 eða að senda tölvupóst á netfangið agust@thjodminjasafn.is. Vinsamlegast sendið svörin til: Þjóðminjasafn Íslands, þjóðháttasafn, Suðurgötu 43, 101 Reykjavík.
Þjóðminjasafnið vill hvetja fólk til að leggja söfnuninni lið og varðveita þannig mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum.
Þjóðminjasafn Íslands hefur í um hálfa öld safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Spurt hefur verið um lífshætti, siði og venjur fyrr á tímum en í seinni tíð hefur söfnunin einnig beinst að samtímanum. Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og slegin inn í stafrænan gagnagrunn. Aðgangur að grunninum er þó takmarkaður og háður sérstöku leyfi.

