Spurningalistar

Skrá 26. Heyannir III

Spurt um samantekningu heys, heyþurrk, hvað var talið boða þurrk, hvernig heyi var snúið, rakað saman, dreift, garða, föng, sátur, galta o.s. frv., hvernig hey var bundið, hvort einn eða fleiri unnu að því, hve mikið ætlað var að menn byndu á einum degi, hvort síðasta fang var e.t.v. skilið eftir á engjunum, hvenær tekið var að nota heyýtur, dregnar af hestum, hvenær hæfilegt þótti að ljúka heyverkum á hausti. Spurt um hvort runnar eða hrís eða þvílíkt var slegið eða skorið til fóðurs og hvernig það fór fram ef gert var.
Nóvember 1972. 88 svör. Tölvusett.

Spurningaskráin

Einstakir kaflar:
Samantekning, að taka saman hey
Þerrir
Að rifja, snúa, leggja í rifgarðinn
Að hræra, ká, káfa í heyji
Að garða
Dríli, drílur, föng, klúkur, o.s.frv.
Að dreifa, breiða á, breiða úr, breiða út
Samanrakstur
Múgar, garðar
Að saxa, fanga upp hey
Tvísett sáta, tvístæða, bólstur, galti
Að leggja reipi
Sæti
Að binda sæti, setja í bönd, binda bagga
Annað er efnið varðar
Laufheyskapur o.fl.

Ritaskrá


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica