Spurningalistar

Skrá 14b. Máltíðir

Spurt um röð og nöfn máltíða sumar og vetur, breytingar á matmálstímum við sérstök tækifæri eða frá sumri til vetrar, hvers konar matur var étinn á hverjum málum.
Júní 1965. 19 svör. Ekki tölvusett.

Máltíðir
1. Hvaða röð var á máltíðum og hvað kölluðust hinar daglegu máltíðir
a) á sumrin
b) á veturna?
(takið fram klukkan hvað þær voru).

2. Breyttust matmálstímar eða voru gefnar aukamáltíðir er einhver sérstök verk voru unnin (t.d. um sláttinn, þegar hirt var, tekinn upp mór eða því um líkt)?

3. Breyttust matmálstímar frá sumri til vetrar einhvern ákveðinn dag, eða skeði breytingin í sambandi við einhver viss fyrirbæri í náttúrunni?

4. Segið frá í aðaldráttum, hvers konar matur var etinn á hinum ýmsu málum. Nægilegt er að taka fram, hvers eðlis aðalrétturinn eða aukamáltíðin var.

5. Eru til sagnir frá síðustu kynslóðum um máltíðarvenjur, sem eru aðrar en þær, er að framan greinir, og ef svo er, í hverju er munurinn fólginn?

Prentvæn útgáfa

Ritaskrá


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica