Spurningalistar

Skrá 2. Nautpeningur

Spurt, hvenær kýr voru settar inn á hausti og hvenær látnar út að vori, hvort beitt var á tún, hvernig brynnt var, fjósmokstur, hvað gert var við moð hvað var talið hæfilegt vetrarfóður handa kú, hvernig hey var hvernig brynnt var, fjósmokstur, hvað gert var við moð. Spurt um trú á mjólk úr kúm með sérstökum lit (þrílitum t.d.) ráð við leiðindum í kúm, sjúkdóma í kúm, læknisráð, kreddur og fyrirboða af atferli kúa, hugmyndir um útlit góðra mjólkurkúa. Spurt, á hvaða tímum dags mjaltir voru, hvort kýr voru mjólkaðar á stöðli á sumrum, mjaltaföt, mjaltaílát, kýrhöft, ráð til að láta kýr beiða, ráð til að láta kýr halda, um meðgöngutíma kúa og burð, ráð til að greiða fyrir burði, hvað gert var við hildir, líknarbelg, hversu farið með kálfa, ráð til að kálfar sygju ekki kýr í haga, notkun bæjarhúsa, byggingarlag og útlit fjósa, fjósbaðstofur, hvernig kýr voru bundnar í fjósi, hvernig lýsingu var háttað.
Maí 1960. 90 svör. Tölvusett.

Spurningaskráin

Ritaskrá


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica