Leiðarþræðir

Leiðarþræðir í gegnum söguna

Grunnsýningin er hugsuð sem ferð í gegnum söguna frá landnámi til ársins 2000 en inn í henni leynast einnig önnur sjónarhorn. Í gegnum sýninguna liggja eins konar leiðarþræðir eða þemu, sem áhugasamir gestir geta fylgt eftir. Hægt er að ganga um sýninguna eftir fjórum merktum leiðum sem hægt er að kynna sér betur hér til vinstri. Leiðarþræðirnir fjórir eru eftirfarandi.

  • Atvinna og lífskjör Hvaða atvinna var stunduð og hvernig voru lífskjör fólks? Hvað bar fólk úr býtum fyrir vinnu sína, hvað gat það veitt sér í fæði og klæðum?
  • Húsakostur og búseta Hvernig bjuggu Íslendingar? Hvernig voru híbýli í gegnum tíðina?
  • Listir og handverk Hvaða listir og handverk iðkuðu íbúar landsins á öldum áður?
  • Félagsmenning og tunga Hvaða mál talaði og skrifaði fólkið í landinu? Hvernig þróaðist ritmenning þjóðarinnar og hverjir voru trúarhættir og félagslegt atferli fólks?



 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica