Lykilgripir

Hvítbláinn

Lykilgripur tímabilsins 1900-2000

HvítbláinnTákn 20. aldar er fáni sem skipherra á dönsku herskipi gerði upptækan á Reykjavíkurhöfn 12. júní 1913.

Um 1900 vildu margir Íslendingar eignast þjóðfána. Flestir kusu fána þar sem blár flötur táknaði fjöll landsins og hvítur kross jöklana. Á fyrstu árum 20. aldar var oft flaggað með þessum fána án þess að yfirvöld fyndu að því.

En samkvæmt lögum var aðeins leyfilegt að flagga danska þjóðfánanum á skipum sem tilheyrðu danska ríkinu. Því tók samviskusamur danskur skipherra fánann af manni sem hafði dregið hann upp á skemmtibát á Reykjavíkurhöfn. Þetta varð tilefni fjölmennra mótmælaaðgerða.

Árið 1915 fengu Íslendingar eigin fána, en þá var valin önnur tillaga þar sem rauður kross er lagður inn í hvíta krossinn.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica