Bjóða grip
Samkvæmt þjóðminjalögum er hlutverk Þjóðminjasafns Íslands að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka minjar, svo sem forngripi, kirkjugripi, listmuni og nytjahluti sem gildi hafa fyrir varðveislu menningarsögu þjóðarinnar. En hvernig eiga söfn að safna frá samtímanum? Hvað viljum við velja sem heimildir um okkar samtíma fyrir komandi kynslóðir?
Á sýningunni Fyrir ári eru sýndir gripir sem komu við sögu í mótmælunum sem fylgdu í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Ástæðan fyrir að þessir gripir eru sýndir nú á meðan við stöndum enn í hringiðu atburðanna er að safnið vill leita álits hjá almenningi á því sem safnast hefur. Hvernig speglar safnið samtímann með þessum gripum? Eru þetta hlutirnir sem segja söguna? Hvað sýnir atburði áranna 2008 - 2009, atburði sem enn sér ekki fyrir endann á?
Hér fyrir neðan er hægt að bjóða safninu grip til varðveislu. Fyllið inn nafn, netfang og lýsingu á gripnum, hvernig hann lítur út og til hvers hann var notaður. Sýnt er að ekki er unnt að varðveita allt og starfsmenn safnsins meta í hverju tilfelli fyrir sig hvort hluturinn bæti einhverju við safnkostinn, eða hvort svipaðir munir séu nú þegar til í safninu.
Þegar gripur er tekinn til varðveislu í Þjóðminjasafni Íslands mega ekki fylgja honum neinar kvaðir. Hluturinn er skráður ítarlega, mældur og ljósmyndaður. Safngripir eru varðveittir um ókomna tíð svo hægt verði að rannsaka þá og sýna eftir 2, 50 eða jafnvel 350 ár.

