Senda mynd

Safnið hefur áhuga á að fá til varðveislu ljósmyndir teknar á vettvangi mótmælanna hvort heldur stafrænar myndir eða pappírsmyndir. Myndirnar verða síðan varðveittar í safninu með sérstöku samkomulagi við höfunda þeirra, sem sjá má hér að neðan. Úrval myndanna mun verða sett upp á sýningunni um leið og þær berast.

Hægt er að senda myndir inn hér að neðan en jafnframt má senda myndir á netfangið jonas.hallgrimsson@thjodminjasafn.is


Sýningar framundan

Senda mynd

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út reiti merkta *

Ég samþykki hér með eftirfarandi skilmála Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni um varðveislu ljósmynda úr svonefndri „Búsáhaldabyltingu“. Ljósmyndari áskilur sér allan rétt varðandi notkun og höfundarrétt við birtingu þeirra ljósmynda sem hér afhendast Þjóðminjasafninu til varðveislu. Ljósmyndasafn Íslands tekur að sér að varðveita myndirnar til framtíðar og ber við skráningu þeirra að geta ljósmyndara og þeirra kvaða sem eru á notkun myndanna. Safnið hefur heimild til að nota myndirnar á örsýningu helgaðri búsáhaldabyltingunni og getur veitt Minjasafni Reykjavíkur – Árbæjarsafni heimild til að nýta myndirnar á sýningu um sama efni árið 2010. Önnur not myndanna eru óheimil nema að höfðu samráði við ljósmyndarann eða með heimild frá honum.

(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica