Þrælkun, þroski, þrá?
Bogasalur 21. febrúar - 6. september 2009
Sýningin Þrælkun, þroski, þrá? fjallar um börn við vinnu á sjó og í landi. Hún vekur upp spurningar um vinnumenningu og barnauppeldi á Íslandi á 20. öld. Á sýningunni er fjallað um hvernig ljósmyndir geta breytt viðhorfi okkar til fortíðarinnar eftir því samhengi sem þær eru skoðaðar í.
Ljósmyndunum er ætlað að opna umræðu og hvetja fólk til að skoða fortíðina í nýju samhengi. Þær vekja upp spurningar er varða viðhorf til barnavinnu, aðbúnað og vinnuskilyrði barna og samskipti sjómanna og barna.
Hvenær breytast ævintýri og heilbrigð vinnumenning í þrælkun? Hvenær verða aðstæðurnar óyfirstíganlegar fyrir lítil börn, líkamlega og tilfinningalega? Hvar liggja mörkin?
Sýningin Þrælkun, þroski, þrá? byggir á stærri rannsókn sem Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur vann í rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eldjárns við Þjóðminjasafn Íslands.
Í tengslum við sýninguna gefur Þjóðminjasafnið út bókina Afturgöngur og afskipti af sannleikanum en í henni er fjallað um ljósmyndir sem menningarlegt greiningartæki og skoðað hvernig ljósmyndir móta sjálfsmynd, gildismat og viðhorf einstaklinga og þjóða. Ljósmyndir móta viðhorf okkar til veruleikans, sannleikans og einstakra atburða í fortíð og nútíð.
Í bókinni er fjallað um ljósmyndir sem menningarlegt greiningartæki og skoðað hvernig ljósmyndir móta sjálfsmynd einstaklinga, fjölskyldualbúm þjóða og viðhorf til dauðans. Ljósmyndir eftir íslenska samtímaljósmyndara eru settar í alþjóðlegt samhengi og fjallað um óljós mörk milli heimildaljósmyndunar og skapandi ljósmyndunar. Texti bókarinnar er bæði persónulegur og aðgengilegur en um leið er um að ræða fræðilega greiningu sem byggir á helstu kenningum í ljósmyndafræði samtímans.
Ljósmyndari: Ari Kárason
Börn við vinnu á saltfiskreit um miðja 20. öld.
Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Benedikt Ingvarsson 7 ára gamall um borð í togaranum Víði GK 450, sumarið 1922. Benedikt var sonur Ingvars Benediktssonar skipstjóra og fékk að fara með pabba sínum á sjó þetta sumar. Um borð í Víði GK þetta sumar var annar lítill drengur, Ásgrímur Skagfjörð Guðjónsson 9 ára en hann var sonur vélstjórans.
Ljósmyndari / Photographer: Ari Kárason
Drengir við leik og veiðar við höfnina á Neskaupsstað um miðja 20. öldina.
Drengir við leik og veiðar við höfnina á Húsavík um miðja 20. öldina.
Ljósmyndari: Ari Kárason
Tveir drengir á gangi við höfnina í Reykjavík um miðja 20. öldina.
Ljósmyndari: Guðni Þórðarson
Ungur drengur við vinnu í fiski árið 1949.
Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Magnús Óskar Guðbjartsson og Jóakim Hjartarson um borð í togaranum Ver GK 3, árið 1927. Magnús Óskar, sem var 6 ára þegar myndin var tekin, var sonur Guðbjarts Ásgeirssonar ljósmyndara og kokks á Ver. Jóakim Hjartarson var bróðir eiginkonu skipstjórans á Ver GK 3 og fékk að fara með mági sínum,Snæbirni Ólafssyni skipstjóra, á sjó sumarið 1927. Hann var þá sjö ára gamall.
Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Magnús Óskar Guðbjartsson lítur upp til hásetanna um borð í Ver GK 3 árið 1928.
Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Áhöfnin á Garðari GK 25 sumarið 1930. Dökkhærði drengurinn fyrir miðju er Vigfús Sigurjónsson, sonur Sigurjóns Einarssonar skipstjóra. Vigfús var 9 ára gamall þegar myndin var tekin. Ljóshærði drengurinn sem situr fyrir miðri mynd er Sigurður Jónsson en hann var sonur Jóns Sigurðssonar vélstjóra.
Ljósmyndari: Guðni Þórðarson
Börn og fullorðnir við fiskverkun í Vestmannaeyjum árið 1949.
Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Einar Sigurjónsson um borð í Garðari GK 25 árið 1936. Einar heldur hér um trollvírinn.
Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Sveinn Guðbjartsson í hvítum bol við vinnu í saltfiskreitnum ásamt félaga sínum Ágústi Hilmarssyni. Myndin er tekin í Hafnarfirði árið 1950.

Ljósmyndari: Guðbjartur Ásgeirsson
Áhöfn hvílir sig um borð í Garðari GK 25 árið 1938. Drengurinn sem liggur með krosslagðar hendur fyrir miðri mynd er Einar Sigurjónsson en hann var 8 ára þegar myndin var tekin.










