Gripur mánaðarins
Nordiska museet - hani

Hani á hjólum

Gripur mánaðarins - apríl 2009

Vorið 2008 var gengið frá sérstökum samningi milli Þjóðminjasafns Íslands og Nordiska museet í Stokkhólmi um íslenska gripi sem hafa verið í eigu sænska safnsins frá því á 19. öld. Í tilefni þess að munirnir komu til Íslands vorið 2008 setti Þjóðminjasafn Íslands upp sýningu á gripunum sem stóð til 31. janúar 2009. Einn þessara gripa er fagurlega útskorinn hani á hjólum.

Haninn er ættaður frá Eskifirði. Íslensk leikföng frá 19. öld eru sjaldséð og er hann því mikið fágæti og góður viðauki við safnkost Þjóðminjasafnsins. Leikföng voru fábrotin á Íslandi á öldum áður og notast var við það sem til féll. Leikir barna eru oft eins konar spegilmynd af veröld hinna fullorðnu og því er eðlilegt að búleikir væru algengir til sveita á Íslandi áðurfyrr, þar sem búsmalinn var gerður úr beinum og hornum.

Útskurður í tré var listform sem Íslendingar helguðu sig öðru fremur. Um það vitna fornir útskornir húsaviðir og líkneski frá miðöldum sem varðveist hafa. Þegar fram liðu stundir má skilgreina útskurðinn sem alþýðulist þar sem forn munsturgerð varðveittist og þróaðist í gerð brúkshluta og hirslna, s.s. rúmfjala, kistla og aska. Af öllum þeim fjölda gripa sem varðveist hafa sést að þessi listsköpun lifði með íslenskri alþýðu fram undir 20. öld.





 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica