Gullhringur frá Þingvöllum
Gripur mánaðarins - júlí 2009
Í tilefni af 150 ára afmæli Þingvallakirkju var ákveðið að lagfæra kirkjuna og umhverfi hennar. Meðal annars hafa tröppur að kirkjunni verið endurgerðar og stétt við kirkjuna lagfærð. Jarðvegskipti vegna stéttarinnar hafa verið undir eftirliti fornleifafræðings og mikið magn af gripum hefur komið fram við rannsóknina og þeirra á meðal er innsiglishringur úr gulli sem fannst milli hellna fyrir framan kirkjuna. Líklegt er að hringurinn hafi borist með jarðlagi sem flutt var á staðinn.
Gullið í hringnum er 12 karöt, steinninn er af gerðinni "heliotrop", stundum nefndur blóðsteinn. Þetta er tiltölulega mjúkur hálf eðalsteinn, oft notaður í innsigli. Talið er að á innsiglinu séu stafirir FI eða J og bæði má sjá skjöld og kross á steininum og hugsanlega kórónu.
Undir tröppum fyrir framan kirkjuna kom í ljós stétt sem að öllum líkindum hefur tilheyrt eldri kirkju á Þingvöllum. Við fornleifarannsókn sem fram fór árið 1999 fannst við norðurhorn kirkjunnar grjótundirstaða timburkirkju sem talinn er vera frá byrjun 16. aldar. Stéttin sem fannst er á svipuðu dýpi og ekki ólíklegt að stéttinn sé frá þeirri kirkju, en bíða verður eftir niðurstöðu úr rannsókn á gjóskusýnum áður en hægt verður að staðfesta það.

