Laufás í Eyjafirði
Gripur mánaðarins - september 2009
Laufás hefur verið í vörslu húsasafns Þjóðminjasafnsins frá 1948. Honum var forðað frá eyðileggingu með miklum viðgerðum á vegum safnsins á árunum 1957-59. Jafnframt fóru fram stórar viðgerðir 1976-78 og á árunum 1994-2002. Í sumar var unnið að viðgerðum á baðstofunni og frambænum. Þótt stórir viðgerðaráfangar fari fram með nokkurra áratuga millibili eru torfbæir þess eðlis að stöðugt þarf að huga að viðhaldi þeirra.
Laufás er gott dæmi um húsakynni á auðugu prestssetri á síðari hluta 19. aldar. Bærinn á sér óslitna byggingasögu allt aftur á miðaldir og hefur verið endurbyggður eftir því sem ástæða hefur þótt til á hverjum tíma.
Bærinn, eins og hann lítur nú út, varð að mestu til á tímum sr. Björns Halldórssonar sem var prestur og prófastur í Laufási á árunum 1853-1882. Líklegt má telja að þeir sr. Björn, Tryggvi Gunnarsson bankastjóri og Jóhann Bessason smiður frá Skarði hafi lagt á ráðin um útlit framhúsanna en Jóhann var jafnframt aðalsmiður þeirra, sem og flestra annarra húsa Laufásbæjar.
Í bænum er töluvert af gripum en þeim var safnað til hans snemma á sjöunda áratugnum. Flestir eru frá nágrannabæjunum en nokkrir eru þó frá Laufási.
Laufás er opinn daglega frá 13. maí til 15. september frá 9-18 og eftir samkomulagi á veturna.
Minjasafnið á Akureyri sér nú um rekstur og starfsemi í bænum.

