Leikbrúðan Konni
Gripur mánaðarins - október 2009
Baldur Georgs Takács búktalari og sjónhverfingamaður skemmti með leikbrúðunni Konna um langt árabil, eða frá 1946 til 1964.
Brúðan er upphaflega gerð í Bretlandi árið 1946. Skipt hefur verið um höfuð, en nýja höfuðið er þó eins og hið upphaflega. Konni er í jakkafötum úr brúnu gallabuxnaefni, ljósbrúnni baðmullarskyrtu og með ljósbrúna slaufu úr baðmull. Marglit húfa fylgir með, en áður var Konni í stórum jakka og buxum. Honum fylgir gömul ferðataska, sem hann var geymdur og fluttur í.
Baldur og Konni skemmtu víða og voru mjög vinsælir meðal barna sem og fullorðinna. Þeir sungu einnig inn á hljómplötu og má sjá þeim félögum bregða fyrir í kvikmyndinni Með allt á hreinu frá árinu 1982.
Í dag má sjá Konna á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár.

