Gripur mánaðarins
sparksleði

Sparksleði

Gripur mánaðarins - mars 2010

Gripur marsmánaðar 2010 er sparksleði sem smíðaður var handa ungri stúlkið árið 1943.

Sleðar eins og þessi voru ýmist íslenskir eða innfluttir, flestir frá Noregi og Svíþjóð. Algengt var að meiðarnir væru innfluttir en viðurinn, oftast einhvers konar harðviður, snikkaður til og sleðarnir settir saman hér á landi.

Elstu auglýsingar í tímaritum um skíðasleða eru frá því um 1930 en þeir virðast hafa verið nokkuð algengir um allt land. Það var þó einungis hægt að nota þá þar sem var slétt undirlendi, harðfenni eða ís.

Þó sparksleðar sem þessi séu orðnir fremur sjaldséðir má þó enn sjá slíkum bregða fyrir á vetrum.

Börn á sparksleða




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica