Á sýningunni má sjá ljósmyndaverk eftir Einar Fal Ingólfsson, sem unnin eru með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 1897. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2010.
Lesa meira