Samstarfsaðilar

Samstarf

Meðal samstarfsaðila Þjóðminjasafnsins eru vinafélag Þjóðminjasafnsins, Minjar og saga, ýmis söfn innanlands og utan, og sérstakir minningarsjóðir sem starfa í tengslum við eða innan vébanda safnsins. Einnig hafa ýmsir aðilar atvinnulífsins stutt Þjóðminjasafnið á tímabilum, svo sem í kringum enduropnun safnsins 2004.

Landsvirkjun var bakhjarl Þjóðminjasafns Íslands árin 2001 til 2005. Í samvinnu við Landsvirkjun var stofnuð forystusveit Þjóðminjasafnsins eða Hollvinir sem voru valdir aðilar úr atvinnulífinu.

Einnig var komið á laggirnar Framfarasjóð Þjóðminjasafns Íslands sem hafði það að markmiði sínu „...að ná öflugri tengingu við atvinnulífið og íslenskt samfélag á hverjum tíma með því að leita leiða til fjármögnunar ... og til að styrkja ímynd Þjóðminjasafns Íslands“.

Samstarfið við Landsvirkjun gerði safninu unnt að leggja metnað og fagmennsku í forvörslu dýrgripa auk átaks í markaðsmálum og merkingu minjastaða. Árangur samstarfsins birtist einnig í fjölmörgum sérsýningum sem safnið stóð fyrir víða um land. Þjóðminjasafnið naut einnig samstarfs og stuðnings við fyrirtækin Bakkavör Group, KB-banka, Vís.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica