Kirkjur Íslands
Ritröð Þjóðminjasafns Íslands, Húsafriðunarnefndar og Biskupsstofu í samstarfi við ýmsa aðila
Þjóðminjasafnið stendur að útgáfu ritraðar um kirkjur Íslands ásamt Húsafriðunarnefnd ríkisins og Biskupsstofu í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag. Fornleifavernd ríkisins hefur auk þess komið að útgáfu 5.-12. bindis, Byggðasafn Skagfirðinga tók þátt í útgáfu 5.-6. bindis, Minjasafnið á Akureyri og Byggðasafnið á Dalvík tóku þátt í útgáfu 9.-10. bindis. Meðútgefandi 11. og 12. binda er Kjalarnessprófastsdæmi og binda nr. 13 og 14 er Borgarfjarðarprófastsdæmi.
Afturgöngur og afskipti af sannleikanum
Bók um ljósmyndir og ljósmyndafræði
Ljósmyndir móta viðhorf okkar til veruleikans, sannleikans og einstakra atburða í fortíð og nútíð. Í bókinni Afturgöngur og afskipti af sannleikanum eftir Sigrúnu Sigurðardóttur er fjallað um ljósmyndir sem menningarlegt greiningartæki og skoðað hvernig ljósmyndir móta sjálfsmynd einstaklinga, fjölskyldualbúm þjóða og viðhorf til dauðans. Ljósmyndir eftir íslenska samtímaljósmyndara eru settar í alþjóðlegt samhengi og fjallað um óljós mörk milli heimildaljósmyndunar og skapandi ljósmyndunar.


