Kirkjur Íslands
Kirkjur Íslands 9

Kirkjur Íslands

Ritröð Þjóðminjasafns Íslands, Húsafriðunarnefndar og Biskupsstofu í samstarfi við ýmsa aðila

Þjóðminjasafnið stendur að útgáfu ritraðar um kirkjur Íslands ásamt Húsafriðunarnefnd ríkisins og Biskupsstofu í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag. Fornleifavernd ríkisins hefur auk þess komið að útgáfu 5.-12. bindis, Byggðasafn Skagfirðinga tók þátt í útgáfu 5.-6. bindis, Minjasafnið á Akureyri og Byggðasafnið á Dalvík tóku þátt í útgáfu 9.-10. bindis. Meðútgefandi 11. og 12. binda er Kjalarnessprófastsdæmi og binda nr. 13 og 14 er Borgarfjarðarprófastsdæmi.

Samstarfsverkefnið Kirkjur Íslands hófst árið 1999. Framlag Þjóðminjasafnsins er fólgið í söfnun og skráningu frumheimilda, einkum um kirkjugripi. Sérfræðingar safnsins eru meðal höfunda bókanna og hafa ritað um kirkjustaði, kirkjur og kirkjugripi. Einnig leggur Þjóðminjasafnið fram stærstan hluta myndefnis í ritröðina og eru nýjar myndatökur mikilvægur þáttur. Þjóðminjasafnið hefur haft með höndum myndritstjórn bókanna.

Bindi 13-14. Friðaðar kirkjur í Borgarfjarðarprófastsdæmi.

  • Akrakirkja, Álftaneskirkja, Álftártungukirkja, Borgarkirkja, Hjarðarholtskirkja, Hvammskirkja, Stafholtskirkja. 2009. (Kirkjur Íslands; 14)
  • Akraneskirkja, Fitjakirkja, Gilsbakkakirkja, Hvanneyrarkirkja, Innra-Hólmskirkja, Leirárkirkja, Reykholtskirkja, Stóra - Áskirkja. 2009. (Kirkjur Íslands; 13)

Bindi 11-12. Friðaðar kirkjur í Kjalarnessprófastsdæmi.

  • Bessastaðakirkja, Brautarholtskirkja, Fríkirkjan í Hafnarfirði, Hafnafjarðarkirkja, Lágafellskirkja, Reynivallakirkja, Saurbæjarkirkja, Vindáshlíðarkirkja. 2008. (Kirkjur Íslands; 12)
  • Kálfatjarnarkirkja, Keflavíkurkirkja, Kikjuvogskirkja, Krýsuvíkurkirkja, Landakirkja, Njarðvíkurkirkja, Útskálakirkja. 2008. (Kirkjur Íslands; 11)

Bindi 9-10. Friðaðar kirkjur í Eyjafjarðarprófastsdæmi.

  • Akureyrarkirkja, Grundarkirkja, Hólakirkja, Lögmannshlíðarkirkja, Minjasafnskirkja, Munkaþverárkirkja, Möðruvallakirkja í Eyjafirði, Saurbæjarkirkja. 2007. (Kirkjur Íslands; 10)
  • Bakkakirkja, Bægisárkirkja, Glæsibæjarkirkja, Kvíabekkjarkirkja, Miðgarðakirkja, Möðruvallakirkja í Hörgárdal, Ólafsfjarðarkirkja, Tjarnarkirkja, Urðarkirkja, Vallakirkja. 2007. (Kirkjur Íslands; 9)

Kirkjur Íslands 8Bindi 7-8. Friðaðar kirkjur í Húnavatnsprófastsdæmi.

  • Auðkúlukirkja, Bergsstaðakirkja, Blönduóskirkja, Bólstaðarhlíðarkirkja, Hofskirkja, Holtastaðakirkja, Svínavatnskirkja, Undirfellskirkja, Þingeyrakirkja. 2006. (Kirkjur Íslands; 8)
  • Árneskirkja, Kaldrananeskirkja, Kollafjarðarneskirkja, Staðarkirkja í Steingrímsfirði, Breiðabólsstaðarkirkja, Kirkjuhvammskirkja, Staðarbakkakirkja, Staðarkirkja í Hrútafirði, Vesturhópshólakirkja, Víðidalstungukirkja. 2006. (Kirkjur Íslands; 7)

Bindi 5-6. Friðaðar kirkjur í Skagafjarðarprófastsdæmi.

  • Barðskirkja, Fellskirkja, Grafarkirkja, Hofskirkja, Hofsstaðakirkja, Hóladómkirkja, Knappsstaðakirkja, Viðvíkurkirkja. 2005. (Kirkjur Íslands; 6)
  • Goðdalakirkja, Hvammskirkja, Ketukirkja, Reykjakirkja, Reynistaðarkirkja, Sauðárkrókskirkja, Silfrastaðakirkja, Sjávarborgarkirkja, Víðimýrarkirkja. 2005. (Kirkjur Íslands; 5)

Bindi 1-4. Friðaðar kirkjur í Árnesprófastsdæmi.

  • Eyrabakkakirkja, Gaulverjabæjarkirkja, Kotstrandarkirkja, Stokkseyrarkirkja, Strandarkirkja,
    Úlfljótsvatnskirkja, Þingvallakirkja. 2003. (Kirkjur Íslands; 4)
  • Bræðratungukirkja, Búrfellskirkja, Miðdalskirkja, Mosfellskirkja, Torfastaðakirkja. 2002. (Kirkjur Íslands; 3)
  • Hraungerðiskirkja, Ólafsvallakirkja, Stóra-Núpskirkja, Villingaholtskirkja. 2002. (Kirkjur Íslands; 2)
  • Hrepphólakirkja, Hrunakirkja, Tungufellskirkja. (Kirkjur Íslands; 1)



 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica