Endurfundir
Fornleifarannsóknir styrktar af Kristnihátíðarsjóði 2001-2005
Kristnihátíðarsjóður var stofnaður árið 2000 til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins var annars vegar að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og hins vegar að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum landsins. Auk greina um sex þeirra staða sem rannsakaðir voru fyrir fjárframlög úr sjóðnum má í bókinni finna ítarlega grein um forvörslu gripa frá þeim. Staðirnir eru Hólar, Keldudalur, Kirkjubæjarkalustur, Reykholt, Skálholt og Skriðuklaustur. Pétur Gunnarsson rithöfundur ritaði inngang og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður formála. Bókin fæst í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

