Afturgöngur og afskipti af sannleikanum
Bók um ljósmyndir og ljósmyndafræði
Ljósmyndir móta viðhorf okkar til veruleikans, sannleikans og einstakra atburða í fortíð og nútíð. Í bókinni Afturgöngur og afskipti af sannleikanum eftir Sigrúnu Sigurðardóttur er fjallað um ljósmyndir sem menningarlegt greiningartæki og skoðað hvernig ljósmyndir móta sjálfsmynd einstaklinga, fjölskyldualbúm þjóða og viðhorf til dauðans. Ljósmyndir eftir íslenska samtímaljósmyndara eru settar í alþjóðlegt samhengi og fjallað um óljós mörk milli heimildaljósmyndunar og skapandi ljósmyndunar.
Texti bókarinnar er bæði persónulegur og aðgengilegur en um leið er um að ræða fræðilega greiningu sem byggir á helstu kenningum í ljósmyndafræði samtímans.
Sigrún Sigurðardóttir er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og cand.mag.-próf í menningarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla með ljósmyndafræði sem sérsvið. Hún er höfundur bókanna Elskulega móðir mín, systir, bróðir, faðir og sonur (1999) og Det traumatiske øjeblik (2006) og hefur birt fjölda greina um sagnfræði og ljósmyndir í íslenskum og erlendum ritum.
Bókin Afturgöngur og afskipti af sannleikanum byggir að stórum hluta á ljósmyndarannsókn sem Sigrún vann í rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eldjárns við Þjóðminjasafn Íslands. Samhliða útgáfu bókarinnar er sýningin Þrælkun, þroski, þrá? sett upp í Þjóðminjasafni Íslands, en sýningin byggir á þeim hluta bókarinnar sem fjallar um ljósmyndir af börnum við vinnu.
Bókin fæst í safnbúðinni.

