Þjóðin, landið og lýðveldið
Vigfús Sigurgeirsson, ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður
Vigfús var einn fremsti ljósmyndari Íslendinga um miðbik 20. aldar og frumkvöðull í íslenskri kvikmyndagerð og var framlag hans til íslenskrar menningarsögu því mikið.
Ljósmyndirnar eru frá árunum 1928-1958 og er stór hluti þeirra frá ferðum Vigfúsar með fyrstu forsetum lýðveldisins en hann var ljósmyndari forsetaembættisins í árdaga þess.
Bókin hefur að geyma fimm greinar ýmissa sérfræðinga:
Hógvær ljósmyndari í stórbrotinni náttúru eftir Lindu Ásgeirsdóttur, safnvörð við Byggðasafn Árnesinga; Íslendingar í heimi framtíðarinnar eftir Írisi Ellenberger, sagmfræðing; Ljósmyndasýning Vigfúsar Sigurgeirssonar Ísland í Kunsthalle Hamborg 1935 og dvöl hans í Þýskalandi eftir Christine Stahl, forstöðukonu Alfred Ehrhardt Stiftung, Köln; Orðlaust vald eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson, forstöðumann Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, og Fortíðin fest á filmu eftir Ágúst Georg Ólafsson, fagstjóra Þjóðháttasafns Þjóminjasafns Íslands.
Formála að bókinni ritar Inga Lára Baldvinsdóttir, sem jafnframt er ritstjóri.
Í bókinni er birt nýtt úrval ljósmynda eftir Vigfús, en slíkt úrval hefur ekki verið gefið út áður.
Bókin er til sölu í Safnbúð Þjóðminjasafns Íslands og þar er einnig hægt að panta hana í síma 530 2203 eða senda tölvupóst til: vala.olafsdottir@thjodminjasafn.is
Verð kr.: 3.600
Hún er einnig fáanleg í öllum helstu bókaverslunum landsins.

