Yfir hafið og heim
Íslenskir munir frá Svíþjóð
Í sýningarskránni er hægt að fræðast örlítið um stofnanda Nordiska museet og um þá sem áttu þátt í því að safnið eignaðist góða gripi frá Íslandi. Í henni eru stuttar yfirlitsgreinar um það hvers konar gripum var safnið til Svíþjóðar.
Aftast í ritinu er birtur heildarlisti yfir gripina með safnauðkennum. Han gagnast sem leiðarvísir fyrir þá sem vilja kynna sér gripina frekar, gerð þeirra og sögu , og nýta sér efniviðinn til rannsókna eða sem uppsprettu í listsköpun og hönnun.
Sýningarritðið veitir einnig upplýsingar um tildrög og aðdraganda þess að safnað var gripum til Svíþjóðar á 19. öld en jafnframt er því ætlað að vera eins konar gluggi eða milliliður sýningargesta að þessum safnkosti.
Sýningarritið er til sölu í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

