Skýrslur Þjóðminjasafnsins
Á tímum torfbæja

Á tímum torfbæja

Þjóðminjasafnið gefur út skýrslu eftir dr. Önnu Lísu Rúnarsdóttur

Út er komin skýrslan Á tímum torfbæja. Híbýlahættir og efnismenning í íslenska torfbænum frá 1850. Skýrslan sem er eftir dr. Önnu Lísu Rúnarsdóttur er gefin út í ritröðinni Skýrslur Þjóðminjasafns Íslands.

Í skýrslunni kynnir Anna Lísa niðurstöður verkefnis sem hún vann í rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eldjárns.

Á tímum torfbæja fjallar um búsetulok í torfbænum og þá þróun sem varð á tímabilinu frá því um 1850 til miðrar tuttugustu aldar, þegar búsetu var að mestu hætt í þessari tegund húsa. Sérstaklega er fjallað um fimm torfbæi sem eru í Húsasafni Þjóðminjasafnsins: Bustarfell, Galtastaði fram, Selið í Skaftafelli, Núpsstað og Keldur.

Tekið er á viðfangsefninu út frá sjónarhóli íbúanna og meðal annars byggt á viðtölum við fólk sem bjó á þessum bæjum. Þróun torfbæjanna er sett í samhengi við ýmsa samfélagslega þætti, svo sem gestagang, sem og við þróun efnismenningar á þessum tíma, en segja má að um nokkurskonar iðnbyltingu heimilanna hafi verið að ræða.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica