Á döfinni

Kreppan, hrunið og búsáhaldabyltingin

Þjóðminjasafn Íslands vinnur nú að söfnun heimilda um kreppuna, hrunið og búsáhaldabyltinguna. Af þessu tilefni hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send er út um þessar mundir. Lesa meira
 
askur

Þorri

Mánuðurinn þorri hefst föstudag í 13. viku vetrar, nú 18. til 24. janúar, en 9. til 15. janúar í gamla stíl fyrir 1700. Mánaðarnafnið er kunnugt frá 12. öld en uppruni þess er óviss. Þorri er persónugerður sem vetrarvættur í sögnum frá miðöldum.

Lesa meira

 

Sérsýningar

Ættarklæði Guðrúnar

Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur

Bogasalur 30. janúar - 25. apríl 2010

Laugardaginn 30. janúar verður sýningin Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands.     Lesa meira
 

Útsaumsverk úr fórum safnsins

Þriðja hæð 30. janúar - 25. apríl 2010

Í tengslum við sýninguna Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur verður úrval útsaumsverka úr fórum safnsins til sýnis á 3. hæð. Útsaumurinn er frá 17., 18. og 19. öld og sýnir ómetanlegan arf íslenskrar handmenntar.
 

Viðburðir

Ættarklæði Guðrúnar

Leiðsögn um sýninguna Ævispor

Þriðjudaginn 9. febrúar mun Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur og annar sýningarhöfunda veita leiðsögn um sýninguna Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur. Leiðsögnin hefst kl. 12:05 fyrir framan Bogasal Þjóðminjasafnsins. Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, en í vor verður fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Lesa meira
 


Húsasafn

Sómastaðir við Reyðarfjörð

Sómastaðir við Reyðarfjörð

Á Sómastöðum er nú gamalt steinhús sem Hans Jakob Beck útvegsbóndi byggði við torfbæinn þar árið 1875. Sérstaða þess felst einkum í byggingatækninni en útveggir eru hlaðnir úr lítt tilhöggnu grágrýti sem er bundið er saman með smiðjumó, einni tegund jökulleirs. Ekki munu varðveitt önnur dæmi um þessa tækni í byggingum hér á landi.

Lesa meira
 

Útgáfa

Kirkjur Íslands 9

Kirkjur Íslands

Ritröð Þjóðminjasafns Íslands, Húsafriðunarnefndar og Biskupsstofu í samstarfi við ýmsa aðila

Þjóðminjasafnið stendur að útgáfu ritraðar um kirkjur Íslands ásamt Húsafriðunarnefnd ríkisins og Biskupsstofu í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag. Fornleifavernd ríkisins hefur auk þess komið að útgáfu 5.-12. bindis, Byggðasafn Skagfirðinga tók þátt í útgáfu 5.-6. bindis, Minjasafnið á Akureyri og Byggðasafnið á Dalvík tóku þátt í útgáfu 9.-10. bindis. Meðútgefandi 11. og 12. binda er Kjalarnessprófastsdæmi og binda nr. 13 og 14 er Borgarfjarðarprófastsdæmi.

Lesa meira
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.