„Hver vegur að heiman…“
APRÍL 2018
Ljósmyndari Toon Michiels.
Lpr-1998-180
Prentuð dagatöl skreytt ljósmyndum tíðkuðust alla 20. öldina. Frægast slíkra íslenskra almanaka hefur verið gefið út af Eimskipafélagi Íslands frá árinu 1928. Helstu ljósmyndarar hvers tíma eru ráðnir til að myndskreyta dagatalið og þykir heiður.
Myndir frá Íslandi hafa ratað á almanök víðar. Í Hollandi var til dæmis gefið út almanak í byrjun árs 1998, sem spannaði tímabilið frá 15. mars 1998 til 22. mars 1999. Sex hollensk fyrirtæki stóðu að útgáfunni. Höfundur myndanna og hönnuður almanaksins var Hollendingurinn Toon Michiels (1950-2015). Myndirnar voru úr litmyndaröð sem hann kallaði Crossroads og hafði tekið á Íslandi árið 1997. Þemað var vegamyndir og alls eru í almanakinu 60 myndir, enda ein opna fyrir hverja viku.
Myndirnar mynda samfellda syrpu enda allar teknar beint á veginn sem myndar þannig miðju í myndfletinum. Þannig verður um ákveðna endurtekna tilfinningu að ræða þegar flett er í gegnum almanakið. Breytileikinn í myndefninu liggur í vegagerðinni; vegslóði, moldarvegur, malarvegur, upphlaðinn vegur eða malbik með málaðri línu og stundum stikum. Veður og birtuskilyrði setja líka svip sinn á myndirnar; það er þoka, kvöldsól, grámuskulegt, skýjað eða sólskin en engar árstíðarbundnar sveiflur enda allar myndirnar teknar að sumri. Hér er ekki atriði að bíða sérstakra birtuskilyrða heldur eru myndirnar teknar í því veðri sem býðst hverju sinni. Auðvitað er síðan margbreytileiki í landslagi og umgjörð veganna.1 Þrátt fyrir þennan breytileika verða myndirnar eintóna.
Það er til vitnis um hversu myndefnið er sígilt að seinna fetuðu tveir íslenskir ljósmyndarar í fótspor Toon þó að með ólíkum hætti væri. Páll Stefánsson gaf út bókina 1881 km árið 2000 þar sem hann ók hringveginn á fjórum sólarhringum og nam staðar á 20 km fresti og tók mynd. Vegurinn er þannig grunnforsenda verkefnisins og það rata nokkrar vegamyndir í bókina þó að myndefnið sé ótrúlega fjölbreytt miðað við þær forsendur sem Páll gaf sér. Gréta S. Guðjónsdóttir gaf út bókina On the road árið 2016 þar sem útgangspunkturinn var ferðalagið eða sjálf leiðin. Kjarni myndanna er af vegum, að vetri sem sumri og af fjölbreyttum gerðum þó að Gréta reyni að fanga landslagið samtímis.
Dagatöl ljúka hlutverki sínu þegar tími þeirra rennur út og rata sína leið í endurvinnslu. Það er fengur að því að eiga eintak af almanaki Toon Michiels, líklega eitt fárra varðveittra eintaka af þeim 1500 sem út voru gefin og upplifa hans sýn á íslenska vegakerfið.
Inga Lára Baldvinsdóttir
1) Myndir frá Íslandi eftir Toon rötuðu einnig í litla bók eftir hann, Reisfoto´s með myndum frá Spáni, Portúgal, Norður-Frakklandi og Íslandi sem kom út 1987. Hann hélt sýningu á ljósmyndum af útsprungnum rósum áratug síðar eða sumarið 1997.