Skírnarfontur Bertels Thorvaldsen í Dómkirkjunni í Reykjavík.
ÁGÚST 2019
Ljósmyndastofa Sigfúsar Eymundssonar. Þjms. Lpr-1331-a og -b.
Mynd mánaðarins er að þessu sinni myndir fengnar úr Ljós- og prentmyndasafni Þjóðminjasafnsins. Um er að ræða fjórar myndir af skírnarfonti Bertels Thorvaldsen, tvær myndir á sitt hvorri glerplötunni, hér samsettar í eina. Myndirnar eru teknar við sama tækifæri sennilega undir lok 19. aldar og sýna allar fjórar hliðar skírnarfontsins og skálina að ofan, bakgrunnur myndanna er Dómkirkjan í Reykjavík að innanverðu.
Skírnarfonturinn er höggvinn í Róm árið 1827 og mun tilefnið að gerð hans vera ætlun Thorvaldsen að gefa ættjörð sinni góðan grip til minningar um föður sinn Gottskálk Þorvaldsson sem lést 1806.1 Fonturinn komst þó fyrst til Reykjavíkur snemmsumars 1839, eftir að hafa staðið í Kaupmannahöfn í sex ár, og er þá settur upp í Dómkirkjunni og vígður 14. júní sama ár.
Fonturinn er gerður úr hvítum marmara, ferstrendur stöpull með lágum sökkli, lágmyndir á öllum hliðum hans, en þéttur blómakrans umkringir skálina að ofan. Lágmyndirnar eru minni úr Biblíunni: Á framhlið er skírn Krists í ánni Jordan, á vinstri hlið (framan frá séð) er María með Jesúbarnið og Jóhannes, til hægri Kristur blessar börnin og á bakhlið þrír englar líðandi í lofti.2 Þar undir er latnesk áletrun:
Opus hoc Romae fecit / et Islandiae / terrae sibi gentiliciae / pietas causa donavit / Albertus Thorvaldsen / A.MDCCCXXVII.
(Verk þetta vann í Rómaborg / og Íslandi / ættarlandi sínu / ánafnað í ræktarskyni / Albert Thorvaldsen / árið 1827.)
Lágmyndirnar eru gerðar í anda Nýklassíkurinnar og eru frekar naturalískar í framsetningu. Það má því segja að þær séu að einhverju leyti undir áhrifum bæði Endurreisnar og Rómantíkur enda gerðar á því tímabili sem þessar listastefnur skarast að vissu marki.
Á myndunum stendur skírnarfonturinn á gólfteppi sem greinilega hefur verið gert fyrir hann sérstaklega, rammi sem ofinn er í dúkinn fellur alveg að útlínum sökkulsins. Í baksýn má á fyrstu mynd sjá fram í kirkjuskipið, á annarri og þriðju sér til hægri og svo til vinstri frá altarinu séð og svo að lokum á fjórðu myndinni sjást grátur, altari, altarisdúkur og neðri hluti altaristöflu Dómkirkjunnar með volduga kertastjaka til beggja hliða.
Þorvaldur Böðvarsson.
1) Carl Frederik Wilckens: Thorvaldsen við Kóngsins nýjatorg. Reykjavík 1978. Bls. 128.
2) Kristján Eldjárn o.fl: Bertel Thorvaldsen 1770-1844. Kaupmannahöfn 1982. Bls. 26-27.